Hótað?

Ég myndi giska á að skýringin á því að stelpugreyið kærir ekki sé sú að hún sé bara skíthrædd.. ætli þessir nauðgarar séu ekki að hóta þeim einhverju ? Finnst það allavega ekki ósennilegt..

Svo hræðilegt hvað þessi mál leysast illa Angry


mbl.is Stúlkan ætlar ekki að kæra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er curling íþrótt en ekki vaxtarrækt?

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvers vegna kemur ekki einu sinni lítil fréttaklausa í blöðum eða sjónvarpi þegar Íslandsmót í fitness og vaxtarrækt fer fram, þar sem tugir keppenda mætast og keppa eftir margra mánaða undirbúning?

Íslendingar eiga ágætis hóp af flottu fitness og vaxtarræktarfólki sem er að gera virkilega góða hluti í þeim heimi. Til dæmis fór fram nú um helgina Osló Grand Prix sem er stórt mót í Noregi. Þar náðu 5 íslendingar í sæti, þar af þrír í 2.sæti.

Áhugafólk um sportið fyllti Austurbæjarbíó og gott betur en það á Bikarmóti IFBB í nóvember, fólk flykktist til Akureyrar að fylgjast með Íslandsmóti IFBB um páskahelgina, nokkrir Íslendingar ná frábærum árangri á erlendu móti en samt heyrir maður hvergi á þetta minnst í fjölmiðlum.

Þetta eru bara svona smá vangaveltur, það er fjallað um Íslandsmót í krullu í fréttum Ríkissjónvarpsins..hvað ætli margir stundi krullu á Íslandi en vaxtarrækt & fitness er bara ósýnilegt, ég bara spyr..

Hér eru nokkrar myndir af Íslendingunum okkar í Noregi um helgina, fékk þessar myndir á Vodvafikn.net:

Guðrún  2.sæti -163 cm flokki

Guðrún 2.sæti í 163 cm flokki

Magnús Bess 2.sæti -100kg flokkur

Magnús Bess

Guðmundur Bragason 2.sæti -90 kg flokkur

2348679618_a96a6ac3d5

Sigurður Kjartansson 3.sæti - 90 kg flokkur

Sigurður Gestson 5.sæti - 80 kg flokkur

 


Erum við lélegustu þjófar í heimi?

Hvernig er það með alla þessa íslensku innbrotsþjófa, hefur einhver sloppið undan lögreglunni?

Það virðist eitthvað vanta uppá skipulagninguna hjá þeim fyrst það eru daglegar fréttir að innbrotsþjófar hafi verið gómaðir 50 metrum frá innbrotinu,

er löggan okkar svona ótrúlega öflug eða erum við bara ömurlegir ræningjar...?


mbl.is Fjórir innbrotsþjófar gómaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband